|
Landvari vistaður hjá flutningasviði SVÞ |
|
|
Aðalfundur Landvara var haldinn á dögunum. Þar var formlega tekin ákvörðun um að leggja félagið í hendur flutningasviðs SVÞ. Þar með var formlega fylgt eftir ákvörðun sem tekin var á aðalfundi félagsins 2006 en síðan þá hafa félagar í Landvara ekki greitt aðildargjöld.
Landvari á sér merka sögu og með þessari ákvörðun er nafni og tilgangi félagsins viðhaldið og er áfram í höndum samtaka sem hafa hagsmuni vöruflutningagreinarinnar á Íslandi að leiðarljósi . Flutningasvið SVÞ er stolt af því að hafa tekist að sameina vöruflutningagreinina undir einum hatti og ber mikla virðingu fyrir því starfi sem unnið hefur verið í áratugi á undan hjá samtökum eins og Landvara. Ætlunin er að byggja á þeim merka grunni og halda áfram á sömu braut.
|