Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Samantekt um fund um ákvarðanatöku og samgöngubætur haldinn 16. júní
Samantekt um fund um ákvarðanatöku og samgöngubætur haldinn 16. júní Prenta Tölvupóstur

Flutningasviðið hélt fund undir yfirskriftinni „Er til rétt aðferð til að forgangsraða vegaframkvæmdum?"  Tilgangur fundarins var að fá upplýsingar um hvar ákvörðunarvaldið liggur um samgönguframkvæmdir í dag og í framhaldi af því  kalla fram hugmyndir um hvernig því væri  best fyrirkomið.  Það hvernig ákvarðanir eru teknar um einstaka framkvæmdir eða forgangsröðun þeirra virðist ekki alltaf liggja ljóst fyrir og því var eftirsóknarvert að kalla eftir áliti sérfræðinga um það efni. 

Með erindi á fundinum voru Eiríkur Bjarnason verkfræðingur hjá Vegagerðinni, Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við Háskólann á Akureyri, Ásdís Hlökk Theódórsdóttir skipulagsfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík og Hjalti Jóhannesson og Kjartan Ólafsson við Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri.

Samantekir um einstaka erindi:

Er til rétt aðferð til að forgangsraða vegaframkvæmdum? Eiríkur Bjarnason verkfræðingur Vegagerðarinnar
pdf Erindi Eiríks

Vegstyttingar og arðsemi. Jón Þorvaldur Heiðarsson RHA - Rannsókna og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri
pdf Erindi Jóns Þorvaldar

Hver ræður för? Ásdís Hlökk Theódórsdóttir skipulagsfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
pdf Erindi Ásdísar Hlakkar

Hver er tilgangurinn með vegagerð? Um forgangsröðun framkvæmda í vegakerfinu og samanburð ólíkra valkosta Hjalti Jóhannesson landfræðingur og sérfræðingur RHA Kjartan Ólafsson félagsfræðingur og lektor HA
pdf Erindi Hjalta og Kjartans

Greina mátti samhljóm allra þeirra sérfræðinga sem fundinn sátu að það væri brýnt mál að endurskoða verklag stjórnvalda við ákvarðanatöku um samgönguframkvæmdir . Það væri álíka brýnt að stjórnvöld hleyptu að hugmyndum og fjölbreyttri sýn sérfræðinga inn í þá vinnu.  Kostnaðar- og ábatagreining voru allir sammála um að yrði hluti af nýju verklagi en þó gæti það aldrei ráðið ákvörðunum eingöngu.

Það var tvímælalaust niðurstaða fulltrúa SVÞ á fundinum. Forgangsmálið eins og það horfir við flutningagreininni er breytt verklag við ákvarðanatöku um samgönguframkvæmdir frá því sem nú er. Skortur á upplýsingum um á hverju forgangsröðun framkvæmda byggir er algjör og gagnsæji ákvarðanatökunnar um einstaka framkvæmdir er ekkert. Afgreiðsla Svínavatnsleiðar út af borðinu sem vegstæði hringvegar númer 1 fyrir það svæði er dæmi um það.

Flutningasvið SVÞ skorar á samgönguráð að nýta sér þekkingu og hugmyndir þeirra sérfræðinga sem sátu þennan fund áður en teknar verða endanlegar ákvarðanir um nýtt verklag um samgönguframkvæmdir til framtíðar. Þegar samgöngubætur og ákvarðanir um samgönguframkvæmdir eru annars vegar er mikilvægara en flest annað að tryggja að sem flestar hliðar málsins komi upp á yfirborðið og að tekist sé á við þær sem flestar og tekið mið af því í ákvarðanatökuferlinu.

Það er ljóst að hagsmunir atvinnulífs og flutningagreinarinnar fara saman enda er flutningagreinin þjónustugrein atvinnulífs út um allt land. Það þýðir að það eru ekki síður hagsmunir flutningagreinarinanr að koma á viðunandi vegsambandi við norðausturlannd svo dæmi sé tekið en að það eru hagsmunir hennar að bæta helstu vegi út frá Reykjavík. Verkefnin sem takast á við eru stór og þau eru brýn og þau hafa líka margar hliðar. Við ákvarðanatöku um samgönguframkvæmdir til framtíðar er mikilvægt að tryggja sem víðasta sýn á viðfangsefnið. Verða það lokaorð þessarar samantektar.

 

 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg