|
Áherslur SVÞ í gengismálum |
|
|
Að mati SVÞ er það algerlega lífsnauðsynlegt fyrir fyrirtækin og heimilin í landinu að gengi krónunnar styrkist. Það er skoðun samtakanna að þetta sé það hagsmunamál greinarinnar sem sé mest aðkallandi að leysa og að mikilvægt sé að heildarsamtök atvinnurekenda tali skýrar um þennan þátt málsins.
Um 80% fyrirtækjanna í landinu eru fjármögnuð með erlendum lánum. Á
sama tíma hefur sala/eftirspurn hrapað, þannig að rekstrargrundvöllur
fyrirtækjanna er almennt mjög bágborinn.
|