|
Er rétti tíminn núna til ađ stórauka einkaframkvćmd í vegamálum? |
|
|
Í gær tilkynnti ríkisstjórnin að stærsti einstaki samdráttarliður ríkisútgjalda á þessu ári og því næsta væri til vegaframkvæmda. Draga á saman útgjöld til vegamála um 3,5 milljarða á þessu ári og 8,3 á því næsta.
SVÞ skorar á ríkisstjórnina að láta þetta ekki leiða til þess að samgönguframkvæmdir dragist saman um þessar fjárhæðir heldur skoði með opnum huga arðsemismat einstakra framkvæmda með tilliti til mögulegra veggjalda og geri áætlun um stóraukna einkaframkvæmd í málaflokknum.
Mynd af fundi SVÞ um stórátak í vegamálum 2006 - áhuginn var mikill og vænta má að svo sé enn.
Það er brýnna nú en nokkru sinni fyrr að halda uppi eins háu
atvinnustigi og mögulegt og þá er ekki síður mikilvægt að fjármagn
flæði um hagkerfið. Samgönguframkvæmdir eru gríðarlega mikilvæg
innspýting hvort sem litið er á sveitarfélögin eða ríkisvaldið á tímum
niðursveiflu.
Þarfir fyrir samgöngubætur breytast ekki þrátt fyrir kreppu. Það er
mikilvægt að setja ekki íslenskt samfélag á „hold“ á meðan kreppan
gengur yfir. Fjöldi verktaka er í gríðarlegum vandræðum nú þegar vegna
erlendra lána sem hækkað hafa um og yfir 100%. Þessi atvinnugrein þarf síst af öllu á því að
halda að enn verði dregið saman.
Nú er rétti tíminn til að skoða af alvöru stóraukna einkaframkvæmd í
vegagerð og veggjöld með opnum huga í þeim tilgangi að halda uppi
framkvæmdum og örva þannig hagkerfið. Hagkerfið þarf á örvun að halda.
Hærri skattar á flestum sviðum og samdráttur í stórframkvæmdum eru ekki
til þess fallnar að örva hagkerfið. Einkaframkvæmd í
samgönguframkvæmdum myndi virka sem mikilvægt mótvægi.
Flutningasvið SVÞ skorar á stjórnvöld að skoða þetta með opnum huga.
|