Velta flestra tegunda verslana jókst í maí miðað við mánuðinn þar á undan. Þetta á þó ekki við um dagvöruverslun sem líklega skýrist af því að í apríl voru páskar og því eðlilegt að salan hafi minnkað aftur í maí. Verslun á þó langt í land með að ná sömu raunveltu og fyrir ári síðan.
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 6,9% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 11,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana 6,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru í maí hækkaði um 1,2% frá mánuðinum á undan. Á síðustu tólf mánuðum hækkaði verð á dagvöru um 20,2%.
Sjá frekari umfjöllun á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar
|