Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Hver hefur ákvörðunarvaldið um styttingu hringvegarins? Prenta Tölvupóstur
vegur.jpgLeið ehf. hefur rekið erindi gagnvart sveitarfélögum í Skagafirði og á Blönduósi um að koma styttingum á þjóðvegi 1 inn í aðalskipulag. Erindið gagnvart Blönduósi var afgreitt á dögunum og  hafnaði bæjarstjórn erindinu.  Möguleg stytting hringvegarins sem Blönduósbær hafnar með þessu eru 13 km. Frétt um málið: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/06/01/yfirlysing_fra_leid/

Spurningin sem þessi frétt vekur er – hefur bæjarstjórn Blönduóss síðasta orðið um hvort 13 km stytting hringvegarins komist á aðalskipulag eða ekki? Hvar er endanlegt vald til ákvarðana um samgöngubætur? Í höndum sveitarfélaga eða ríkisins? Hvernig má vænta þess að góð og gild markmið samgönguáætlunar um greiðar, hagkvæmar og öruggar samgöngur nái fram að ganga ef að hugmyndir að nýjum vegstæðum sem gera ráð fyrir styttingum hringvegarins komast ekki inn í skipulag þar sem þeim er hafnað af sveitarfélögum?
Stytting hringvegarins eru augljósir sameiginlegir hagsmunir atvinnulífs út um allt land og landsmanna allra. Því er brýnt að fá svar við þeirri spurningu hvar ákvörðunarvaldið liggur. Flutningasvið SVÞ freistar þess að takast á við þessa spurningu á fundi með sérfræðingum um efnið.


 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg