Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Af fundi með viðskiptaráðherra Prenta Tölvupóstur
gylfi_magnsson_viskiptarherra.jpgGylfi Magnússon, viðskiptaráðherra var gestur á fjölmennum félagsfundi hjá SVÞ 10. júní síðast liðinn. Þar reifaði ráðherra þau viðfangsefni sem við er að glíma hjá stjórnvöldum, svo sem aðgerðir í ríkisfjármálum, gengisójöfnuðinn, endurreisn bankakerfisins og fyrirliggjandi þingsályktunartillögur um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Að lokinni framsögu svaraði ráðherra fyrirspurnum fundarmanna.


 

Það kom meðal annars fram í umræðum að  viðræður eru í gangi milli kröfuhafa gömlu bankanna og stjórnvalda um að kröfuhafar taki yfir nýju bankana. Ráðherra vildi ekki vekja of miklar vonir við að það yrði niðurstaðan en lagði áherslu á að þessar hugmyndir væru enn uppi og stjórnvöld væru að ræða sem mögulega lausn við erlenda kröfuhafa. Ráðherra lagði mikla áherslu á að unnið væri hörðum höndum að niðurstöðu varðandi eignarhald og eignastöðu nýju bankanna og að það væri gríðarlega mikilvægt að ná niðurstöðu í það mál. Við það myndu mörg önnur vandamál leysast af sjálfu sér.
Ráðherra var spurður hvort að það væri raunhæfur möguleiki að  fá evrópska seðlabankann til að styðja við gengi íslensku krónunnar á grundvelli EES samningsins. Ráðherra sagði  ljóst að eins og staðan væri núna gætu Íslendingar ekki uppfyllt ákvæði samningsins um frjálst flæði fjármagns. Á þeim forsendum túlkuðu margir ákvæði samningsins með þeim hætti að hægt væri að óska eftir stuðningi evrópska seðlabankans við gengi krónunnar. Ráðherra sagðist mjög jákvæður fyrir hugmyndinni um leið og hann vildi ekki vekja of miklar vonir um að grundvöllur væri fyrir þessari leið. Grundvöllur slíks samkomulags hlyti m.a. að vera aðildarumræður Íslands við ESB. 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg