|
"Reykjavík Shopping Circuit" - bæklingur um ferðamannaverslun |
|
|
SVÞ og Kaupmannasamtök Íslands hafa gefið út upplýsingabækling fyrir ferðamenn þar sem greint er fá öllum verslunum á þeim stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ferðamenn versla helst, það er í miðborginni, Kringlunni og Smáralind. Bæklingnum verður dreift á alla helstu staði þar sem ferðamenn leggja leið sína, s.s. upplýsingamiðstöðvar, flugvelli, hafnir, hótel o.s.frv. Tilgangur útgáfunnar er að auðvelda ferðamönnum að átta sig þeim verslunum sem eru á hverjum stað og ekki síður að stuðla að aukinni verslun ferðamanna.
|