Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Samstarf banka og atvinnulífs Prenta Tölvupóstur
hand_shake.jpgEins og flestir vita hafa bankarnir verið gagnrýndir úr ýmsum áttum að undanförnu. Bankarnir hafa verið ásakaðir um aðgerðaleysi og að ekki sé gætt samræmis við afgreiðslu einstakra mála innan bankanna. Bankarnir telja þessa gagnrýni ósanngjarna og telja að hún eigi ekki við rök að styðjast.



Á fundi framkvæmdastjóra aðildarfélaga SA með forstöðumönnum fyrirtækjasviða ríkisbankanna þriggja sem haldinn var 11. maí sl., kom fram eindreginn vilji til nánara samstarfs af beggja hálfu.  Þar var ákveðið að taka upp nánara samstarf milli aðila, bæði í þeim tilgangi að draga úr tortryggni milli banka og atvinnulífs og einnig til að vinna að sameiginlegum tillögum um endurreisn fjármálakerfisins og atvinnulífsins alls.

 Á fundinum kom fram að líklega mun gjaldþrotum fjölga mikið á næstunni, en því hefur verið spáð að á milli 30 - 40% allra fyrirtækja í landinu muni ekki lifa af það efnahagsástand sem nú ríkir.  Staðfestu forstöðumenn fyrirtækjasviðanna að það væri í raun umfang vandans eins og hann blasir við þeim.
Aukið samstarf milli bankanna og atvinnulífsins er því gríðarlega mikilvægt og er ástæða til að fagna  að stefnt skuli að auknu samstarfi og eru allir þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í samstarfi við bankanna beðnir um að hafa samband við skrifstofu SVÞ sem fyrst.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg