Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Kanada öðlast gildi
Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Kanada öðlast gildi Prenta Tölvupóstur
img.jpgHinn 1. júlí nk. mun fríverslunarsamningur milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), sem Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss eru aðilar að, og Kanada öðlast gildi.  Samningur þessi er fagnaðarefni og mun hann greiða fyrir viðskiptum milli Íslands og Kanada, bæði að því er varðar innflutning frá landinu og  útflutning til Kanada. Í viðauka við samninginn sem fjallar um viðskipti með landbúnaðarvörur eru hins vegar ákvæði sem leiða til óásættanlegrar samkeppnisstöðu verði ekkert að gert. Þetta á einkum við um franskar kartöflur, en samkvæmt fríverslunarsamningnum munu þær vörur bera 46% toll við innflutning frá Kanada. Franskar kartöflur bera nú 76% toll við innflutning frá öðrum markaðssvæðum.

Þar sem samningur þessi hefur verið lengi í undirbúningi og legið hefur fyrir um nokkurn tíma að þessi staða gæti komið upp hafa samtökin lengi verið í viðræðum við stjórnvöld um þann vanda sem hér hefur skapast. Sent hefur verið formlegt erindi til Jón Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna málsins og verður málinu fylgt eftir af hálfu samtakanna þar til viðunandi niðurstaða fæst.

 Nánari upplýsingar inná vef utanríkisráðuneytisins, Stiklur, vefrit utanríkissviðs .

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg