|
Á aðalfundi SSSK sem haldinn var miðvikudaginn 29. apríl á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 var hvert sæti skipað. Að afloknum hefðbundnum aðalfundarstörfum var nýr vefur SSSK opnaður, www.svth.is. Á fundinum var samþykkt meðfylgjandi ályktun.
Ályktun aðalfundar SSSK 2009.
Aðalstjórn SSSK
Á fundinum var kosin ný stjórn og verður stjórn SSSK þannig skipuð næsta starfsár:
Formaður: Margrét Pála Ólafsdóttir, framkv.st. Hjallastefnunnar
Vara formaður: Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla
Meðstjórnendur: Margrét Theodórsdóttir, skólastjóri Tjarnaskóla
Lovísa Hallgrímsdóttir, skólastjóri Regnbogans
Guðrún Björnsdóttir, framkv.stj. Félagsstofnunar stúdenta
Varastjórn: Snorri Traustason, skólastjóri Waldorfskólanna Sólstafir og Höfn
Pétur R. Guðmundsson, framkv.stj. Skóla ehf
Ída Jensdóttir, skólastjóri Sjálands
Myndir frá aðalfundinum:

|