Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Veggjaldahugmyndir ESB afgreiddar í Evrópuþinginu
Veggjaldahugmyndir ESB afgreiddar í Evrópuþinginu Prenta Tölvupóstur
vegur.jpgSagt hefur verið frá tíu ára gömlum hugmyndum Evrópusambandsins um notkunargjöld fyrir samgöngukerfi og  þeirri niðurstöðu þeirra frá í júlí 2008 að þær skyldu útfærðar eingöngu með veggjöldum á flutningabíla. Þ.e. að hugmyndir þeirra um að notendur greiði fyrir samgöngukerfin hafi endað í niðurstöðu um að gera breytingar á tilskipun um veggjöld á flutningabíla og þannig einungis verið útfærðar á landflutningagreinina. Ekki náðist samstaða um frekari útfærslur notendagjalda.


Tillögur Framkvæmdastjórnarinnar frá í júlí hafa sætt mikilli gagnrýni í Evrópuþinginu og margar breytingatillögur verið lagðar fram. Í vikunni samþykkti þingið að aðildarlöndin fái heimild til útfærslu veggjalda á flutningabíla vegna umferðarþunga og hávaða en ekki vegna kolefnisútblásturs. Þeim er ekki gert skylt að viðhafa þessi veggjöld heldur fá heimild til þess.

Endanleg útfærsla og ákvörðun um málið á eftir að fara fyrir Evrópuráðið.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg