Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa arrow Forsíđa arrow Sérstakar ađstćđur á Íslandi viđurkenndar
Sérstakar ađstćđur á Íslandi viđurkenndar Prenta Tölvupóstur
umferdarskilti_beygjur.jpgUndanþágur frá ítrustu ákvæðum um akstur og hvíldartíma samþykktar í Brussel

Þær ánægjulegu fréttir bárust frá samgönguráðuneytinu í dag að Fastanefnd EFTA hafi samþykkt undanþágubeiðni Íslands frá ítrustu ákvæðum um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra. Þetta eru mikil og gleðileg tíðindi og ástæða til að fagna þeim.

Sveigjanleiki í aksturstíma atvinnubílstjóra á íslenskum vegum og við íslenskar aðstæður er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál og það sem lagt var til grundvallar undanþágubeiðninni. Ekki var farið fram á að íslenskir atvinnubílstjórar fengju að vinna meira en kollegar þeirra í Evrópu einungis að þeir fengju aukinn sveigjanleika í aksturstíma sinn innan hvers dags sem tæki mið af aðstæðum á íslenskum vegum og veðurfari.



Sérfræðinganefnd sem fékk það verkefni að leggja mat á undanþágubeiðnina út frá umferðaröryggi komst að þeirri niðurstöðu að við íslenskar aðstæður geti það beinlínis verið til þess fallið að auka streitu hjá bílstjórum að þurfa að komast á áfangastað innan tiltekins tíma. Þá séu aðstæður á vegum á Íslandi þannig að akstur sé alls ekki eins einhæfur og yfirleitt á meginlandinu og því sé síður hætta á að syfja sæki á ökumenn þess vegna.

Samgönguráðherra tók þá ákvörðun í upphafi ársins að niðurstaða ESA í málinu sem var neikvæð yrði ekki endir málsins heldur yrði það látið farið alla leið fyrir Fastanefnd EFTA.

Það er ástæða til að fagna þeirri ákvörðun samgönguráðherra sérstaklega því með þeirri ákvörðun hafði hann afgerandi áhrif á niðurstöðu málsins. Fastanefndin hafnaði alfarið niðurstöðu ESA og samþykkti í öllum atriðum undanþágubeiðnir íslenskra stjórnvalda frá ítrustu ákvæðum um aksturs- og hvíldartíma. 

Ráðuneytið hefur með þessari niðurstöðu heimild til að innleiða reglugerð ESB frá 2006 með meiri sveigjanleika í daglegum akstri en núgildandi reglur gera kröfu um. Ráðuneytið hefur þegar tilkynnt að stofnaður verði starfshópur til að sjá um innleiðingu reglugerðarinnar þar sem ítrustu öryggiskröfum verði fylgt en jafnframt tekið mið af íslenskum aðstæðum. Verður áhugavert að fylgjast með niðurstöðu þeirrar vinnu.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg