Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Stjórnvöld víki ekki frá gildandi samgönguáætlun
Stjórnvöld víki ekki frá gildandi samgönguáætlun Prenta Tölvupóstur
Umferðarþing var haldið í Reykjavík í gær og bar þar margt áhugavert á góma. Áhersla þingsins á vegina var mjög áhugaverð og fagna flutningasvið Samtaka verslunar og þjónustu því atriði sérstaklega. Það er mikið fagnaðarefni að svo virðist sem forsvarsmenn umferðaröryggismála séu að átta sig á mikilvægi veganna hvað varðar umferðaröryggi . Það er ósk flutningasviðs Samtaka verslunar og þjónustu að þessi áherslubreyting verði leiðarljós samgönguyfirvalda á næstu misserum, ályktun þingsins tekur flutningasviðið heils hugar undir en hún hljómar svo:

"Umferðarþing, haldið í Reykjavík 26. nóvember 2008, fagnar aukinni áherslu á umferðaröryggi við vegaframkvæmdir en bendir jafnframt á að margt er enn óunnið í þeim efnum. Í því árferði sem nú ríkir hvetur Umferðarþing til þess að stjórnvöld víki ekki frá umfangi gildandi samgönguáætlunar. Við val verkefna verði öryggi, arðsemi og ávinningur framkvæmdanna höfð í forgrunni. Aukin vegagerð, þar sem umferðaröryggi er haft að leiðarljósi, hefur jákvæð áhrif á samfélagið í heild. Það sýnir reynsla annarra ríkja, sem brugðist hafa þannig við efnahagserfiðleikum og með því snúið vörn í sókn."

Sjá nánar gert grein fyrir þinginu á vef samgönguráðuneytisins http://www.samgonguraduneyti.is/ og umferðarstofu http://www.us.is/
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg