Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Fræðsludagskrá vetrarins hjá SVÞ
Fræðsludagskrá vetrarins hjá SVÞ Prenta Tölvupóstur

merki_sv_fyrir_augl.gifViltu ná meiri árangri í starfi? Viltu bæta sjálfan þig og starfsfólk þitt í sölu, þjónustu og samskiptum við viðskiptavininn? Viltu njóta þess að vera í vinnunni og vera í góðum samskiptum við samstarfsfólkið? Viltu skapa framkvæmdamenningu innan fyrirtækis þíns? Ef svo er, bíddu þá ekki eftir tækifærinu heldur sæktu það sjálfur og nýttu þér námskeiðin sem við bjóðum upp á í vetur.

Skráning á námskeiðin fer fram á Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   eða á skrifstofu SVÞ í síma 511 300. Námskeiðin verða öll kennd í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð.

Lesa nánar um leiðbeinandann...

Bregðumst við ástandinu

Ástandið á Íslandi hefur breyst mikið síðustu misseri og við upplifum erfiðar aðstæður og erfiða einstaklinga allt í kringum okkur.  Hegðun þeirra hefur áhrif á hvernig okkur líður og hver afköst okkar eru bæði í vinnu og einkalífi. 
Er starfsfólk okkar að lenda í aðstæðum sem erfitt er að vinna úr og hver er þekking þeirra til þess að bregðast við aðstæðunum?  Eru þessar aðstæður og samskipti að hafa áhrif á okkur og hafa áhrif á hegðun okkar?  Hvað getum við gert til að bregðast við og auðveldað okkur að vinna úr þessum aðstæðum?  Þessum og fleiri spurningum verður svarað á námskeiðinu.
Farið verður yfir mismunandi þætti til að bregðast við ástandinu og mismunandi tegundir af erfiðum einstaklingum.  Hvernig tökum við á erfiðum einstaklingum og hvernig komum við í veg fyrir að taka hegðun þeirra inn á okkur.  Lögð verður áhersla á hvað fer í gegnum huga okkar og hvernig við getum unnið úr þeim hugsunum ásamt fleiri aðferðum sem nýtast í samskiptum við erfiða einstaklinga.

Meðal þess sem tekið verður fyrir á námskeiðinu:
•    Hvernig bregðumst við við ástandinu
•    Hvað þurfum við að gera sem einstaklingar
•    Hvernig tökum við á erfiðum umræðum
•    Hvernig tökum við á erfiðum einstaklingum
•    Hvernig á að bregðast við þeim
•    Hvers vegna kvartanir/ábendingar
•    Hvernig á að bregðast við kvörtunum/ábendingum
•    Hverjar eru hugsanir okkar í samskiptum við erfiða einstaklinga

Kennsluaðferðir:
•    Fyrirlestur
•    Umræður
•    Virk þátttaka

Kennari: Sverrir Ragnarsson – Door Training & Cosulting
Dagsetning: Þriðjudagurinn 19. maí 2009, kl. 8:30-12:00
Verð: kr. 9.900
Skráning: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg