|
Veggjöld og mengunarskattur |
|
|
Föstudaginn 6. júní hélt samgönguhópurinn (Transport Group BUSINESSEUROPE) reglulegan fund sinn á 6. hæðinni í Húsi
atvinnulífsins. Til þess fundar komu Einar Pálsson deildarstjóri
tækniþróunar þjónustudeildar Vegagerðarinnar og Sigurður Guðmundsson
skipulagsfræðingur fjármálaráðuneytisins með erindi. Einar kynnti
þróunarverkefni Vegagerðinnar sem er og hefur verið í gangi þar sem
markmiðið er að geta innheimt gjöld af flutningabílum eftir „notkun“
þeirra á vegunum. Sigurður kynnti í kjölfarið glænýjar hugmyndir
nefndar fjármálaráðuneytisins um heildarstefnumótun um skattlagningu
ökutækja og eldnsneytis.
Til umræðu á fundinum voru m.a. hugmyndir Evrópusambandsins um
„Internalisation of External Costs“ en eins og fram hefur komið hér á
síðunni áður eru það hugmynir Evrópusambandsins um að „notandi greiði“
fyrir samgöngukerfin. Evrópusambandið áætlar að kynna hvernig þessum
hugmyndum skuli komið í framkvæmd í þessum mánuði. Heyra mátti á máli
erlendu þátttakendanna að hugmyndir Íslendinga um nýjan skatt sem byggi
á útblástursmagni sé alveg í takti við það sem er að gerast hjá þeim.
Erindi einars má finna hér.
Erindi Sigurðar má finna hér.
|