Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Samgöngur og loftslagsbreytingar
Samgöngur og loftslagsbreytingar Prenta Tölvupóstur

umhverfisrdherra_i_blaa_loninu.pngSamgönguhópur innan BUSINESSEUROPE – Samtaka atvinnulífsins í Evrópu hélt árlegan fund sinn utan Brussel á Íslandi í þetta skiptið. Fimmtudaginn 6. júní var skipulagður fundur undir yfirskriftinni „Transport & Climate Change“ í Bláa lóninu þar sem umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir var frummælandi. Hún kynnti þar framtíðarsýn sína um að Ísland verði  kolefnishlutlaust land.  Í máli hennar kom m.a. fram að á sviði samgangna stendur Ísland sig einna verst hvað varðar útblástur. Á árinu 2006 mátti rekja 23% af úblæstri kolefnis til samgangna og var aukningin á útblæstri gróðurhúsalofttegunda 17% hér á landi á milli áranna 2005 og 2006. Ræðu Þórunnar má finna hér en hún sagði m.a.:

img_0009.jpg „Of all the countries in the European-Economic-Area, Iceland has the highest average emission from cars and we have more passenger cars per capita in Iceland than in the United States. So at present we are a long way from fulfilling our goals of emissions reduction from transport. Transport is a priority sector in cutting emissions. We clearly need to do more, but it will take some time to reverse the trend and start seeing significant cuts.“

 
Aðrir frummælendur á fundinum voru Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orkusetrinu á Akureyri en hann kynnti stöðu Íslands hvað varðar samgöngur og útblástur. Næstur var Jón Bernódusson staðgengill forstöðumanns rannsókna og þróunarsviðs Siglingastofnunar Íslands og kynnti hann tilraunir stofnunarinnar til að ná samdrætti í útblæstri frá íslenska fiskiskipaflotanum auk þess sem hann kynnti möguleika Íslendinga á því að rækta repju til eldsneytisframleiðslu. Síðastur var Sveinn V. Ólafsson verkfræðingur hjá Flugmálastjórn en hann kynnti stöðu flugsins á Íslandi hvað varðar útblástur gróðurhúsalofttegunda og möguleg áhrif þess á atvinnugreinina að flugfélögin fari undir mengungarkvóta Evrópusambandsins eins og kynnt hefur verið.img_0020.jpg

Glærur frummælenda má finna hér:
Sigurður Ingi Friðleifsson
Jón Bernódusson
Sveinn V. Ólafsson

Fundarstjóri var Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins en fundinn sátu m.a. fulltrúar frá samgöngu- og umhverfisráðuneyti, Vegamálstjóri, Siglingamálastjóri, forstjóri Umferðarstofu, formaður samgönguráðs og fulltrúar frá Flugmálastjórn auk hagsmunaaðila úr flutningagreininni og erlendra gesta samgönguhópsins.

 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg