Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Skemmtiferð með samgönguhópinn
Skemmtiferð með samgönguhópinn Prenta Tölvupóstur

transport-group-gullfoss-6.6.08-web.jpgÞað var vel við hæfi að bjóða samgönguhópnum til fundar í Bláa lóninu á fimmtudeginum en það leyndi sér ekkert að staðurinn vakti mikinn áhuga þeirra og meirihlutinn nýtti sér tækifærið á milli fundar og kvöldverðar til að fara í lónið.

Samgönguhópurinn samanstendur af fulltrúum hagsmunasamtaka flutningagreinarinnar á landi, lofti og á sjó frá Evrópusambandsríkjum og viðfangsefni hópsins eru að taka til umræðu og senda umsagnir til Framkvæmdastjórnarinnar um öll mál sem greinina varða. Til landsins mættu fulltrúar 13 samtaka frá 9 löndum Finnlandi, Noregi, Danmörku, Tékklandi, Frakklandi, Belgíu, Bretlandi, Írlandi, Austurríki og Hollandi. Það er ljóst að loftslagsmálin eru og verða stokkseyri.jpgofarlega á baugi enda samgöngugreinin atvinnugrein í miklu vexti sem nær enn nýtir nær eingöngu jarðefnaeldsneyti því var áhugavert fyrir hópinn að takast á við efnið.

Seinni part föstudags var farið með hópinn í ferð gullna hringinn og endað í kvöldverði Við fjöruborðið á Stokkseyri. Hópurinn var sérlega hrifinn af öllu sem fyrir augu bar og er ekki að efa að fundur sem þessi er mikilvægt innlegg í hagsmunabaráttu íslensks atvinnulífs innan stjórnkerfisins í Brussel.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg