Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Lyfjaverð í apótekum lægra á Íslandi en í Danmörku og Svíþjóð
Lyfjaverð í apótekum lægra á Íslandi en í Danmörku og Svíþjóð Prenta Tölvupóstur

 pillur1.jpg   - þegar litið er til 20 kostnaðarsömustu lyfseðilsskyldra lyfja

Lyfjaverð á Íslandi, heildsöluverð jafnt sem smásöluverð, er ákveðið af ríkinu. Þegar borin eru saman verð milli landa er mikilvægt að nota svokallað viðmiðunarverð, sem er lægsta verð lyfja með sama innihaldsefni. Þá má ekki eingöngu telja fjölda tilfella hæsta og lægsta verðs því þá fæst ekki mynd af því hver raunverulegur verðmunur á milli landa. 

Við samanburð á verði 20 kostnaðarsömustu lyfjanna 28. maí sl. í apótekum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi kemur í ljós að þau eru að meðaltali 14,9% dýrari í Danmörku en hér á landi, 5,6% ódýrari í Noregi en hér og 10,1% dýrari í Svíþjóð en hér. Þetta má sjá í meðfylgjandi töflu.

Til viðbótar veita íslensk apótek mismunandi afslátt frá opinberu verði vegna samkeppni þeirra á milli en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er bannað að veita afslátt af lyfseðilsskyldum lyfjum. Með kostnaðarsömustu lyfjum er átt við þau lyf sem almenningur og ríkissjóður ver mestu fjárhæðum til að kaupa.

Þær tölur sem hér voru nefndar að ofan eru meðaltal þessara 20 lyfja en þess ber  að geta að einstök lyf eru mun dýrari hér og önnur mun ódýrari, auk þess sem gengi gjaldmiðla á hverjum tíma hefur áhrif. Sem dæmi má nefna að daginn sem verðsamanburðurinn var gerður kostuðu 30 töflur af Casodex, hormónalyfi sem er algengt í krabbameinsmeðferð, sem svarar 66.638 kr. í Danmörku en 53.991 kr. á Íslandi. Þar er verðmunurinn 12.647 kr. íslenskum apótekum í vil. Aftur á móti kostuðu 98 töflur af Simvastatin, lyfi sem er blóðfitulækkandi, sem svarar 711 kr. í Danmörku en 2.462 kr. á Íslandi. Þær eru með öðrum orðum 1.751 kr. dýrari hér en í Danmörku. Simvastatin hefur þó lækkað verulega hér á landi því í síðasta samanburði í mars sl. var viðmiðunarverðið á Íslandi 4.239 kr.
Í samanburði þessara 20 lyfja eru þau í 7 tilfellum ódýrust í Noregi en í 6 til-fellum eru þau ódýrust á Íslandi. Í 7 tilfellum eru lyfin dýrust í Danmörku en í 6 tilfellum hér á landi.

Verðsamanburðurinn er gerður út frá upplýsingum á vefsíðu Lægemiddelstyrelsen í Danmörku; www.medicinpriser.dk, Legemiddelverket í Noregi; www.legemiddelverket.no, Läkemedelsformånsnämnden í Svíþjóð og vefsíðu lyfjagreiðslunefndar á Íslandi; www.lgn.is. Lyfsalahópurinn mun halda samanburðinum áfram og birta verðkannanir á tveggja mánaða fresti á vef SVÞ, www.svth.is, í von um að þær megi verða málefnalegt innlegg í umræðuna um lyfjaverð hér á landi í samanburði við verð í helstu samanburðarlöndum.
Tafla: 20 kostnaðarsömustu lyfin í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi 28. maí 2008.                                                                                                                                                    

Lyfjasamanburður

Fréttatilkynning 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg