|
Nýr framkvæmdastjóri og breytingar í starfsliði SVÞ |
|
|
|
Samkomulag hefur orðið um að Sigurður Jónsson, láti af störfum framkvæmdastjóra hinn 1. júní nk. og taki að sér önnur verkefni fyrir atvinnurekendur. Andrés Magnússon, tekur við frá sama tíma. Andrés Magnússon er lögfræðingur að mennt og starfaði áður sem framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS).
Óskar Björnsson skrifstofustjóri SVÞ lætur af störfum í lok mánaðarins en hann sagði upp starfi sínu fyrir nokkru. Við hans starfi tekur Guðbjörg Sesselja Jónsdóttir.
Breytingarnar eru í samræmi við stefnumótun samtakanna sem miðar að aukinni starfsemi frá því sem verið hefur. Aukin verkefni og þjónusta skrifstofunnar kalla á fjölgun starfsmanna og því hefur verið ákveðið að bæta við stöðu lögfræðings. Því starfi mun Sigurður Örn Guðleifsson gegna, Sigurður er Cand.Jur og M.Sc. í umhverfisfræðum.
Stjórnin þakkar Sigurði Jónssyni fyrir mikið og gott starf í þágu samtakanna. Honum og Óskari er árnað heilla á nýjum vettvangi. Jafnframt eru Andrés , Guðbjörg og Sigurður boðin velkomin til starfa hjá samtökunum.
|