| Hvíldartímareglur ESB og umferðaröryggi |
|
|
|
Í ljósi umræðu um aksturs- og hvíldartímareglur atvinnubílstjóra er mikilvægt að halda eftirfarandi til haga.
Það er enginn ágreiningur um það að þreyta bílstjóra er stór áhættuþáttur hvað varðar umferðaröryggi. Að bílstjórar séu vel hvíldir undir stýri í umferðinni er og verður eftirsóknarvert í þeim tilgangi að tryggja sem mest umferðaröryggi. Hagsmunaaðilar í vöruflutningum sem barist hafa fyrir undanþágum frá ítrustu kröfum aksturs- og hvíldartímareglna ESB eru alveg sammála stjórnvöldum um þetta atriði og um það er ekki deilt.
Forsendur þess að barist hefur verið fyrir undanþágum frá ítrustu
kröfum aksturs- og hvíldartímareglna og framkvæmd íslenskra stjórnvalda
hvað þær varðar snýst um að reglurnar sem slíkar virki sem
streituvaldur í umferðinni og verði þannig til þess að minnka
umferðaröryggi í stað þess að auka það.
Undanþágubeiðni íslenskra stjórnvalda frá ítrustu kröfum aksturs- og hvíldartímareglna til Eftirlitsstofnunar EFTA gengur út á að fá sveigjanleika í reglurnar til að taka mið af íslenskum aðstæðum - í þeim tilgangi að tryggja með því sem mest umferðaröryggi. Undanþágubeiðnin sem snýr að flutningabílstjórum gengur út á að komast leiðina Austurland - Reykjavík með góðu móti án þess að vera í kapphlaupi við klukkuna. Það er ljóst að það er möguleiki að komast þessa leið í dag við bestu mögulegu aðstæður innan reglnanna eins og þær eru en lítið má út af bregða til þess að það gangi ekki. Það tekur að meðaltali 10 klst. að aka þessa leið og um það snýst undanþágubeiðnin. Að íslenskir atvinnubílstjórar fái heimild til að keyra 10 klst. á dag 3 daga í viku í stað 9 og 11 klst. á dag tvo daga í viku í stað 10. Þá fái íslenskir bílstjórar heimild til að mega aka í 5 klst. samfellt fram að „hvíld" á þessari tilteknu leið til að geta nýtt sér Freysnes sem áningarstað í stað þess að þurfa að hvíla sig eftir 4,5 klst. og neyðast þá til að leggja útí kanti einhvers staðar án þess komast á salerni eða eiga möguleika á veitingum. Þrátt fyrir þessa undanþágu muni íslenskir bílstjórar halda sig innan þess hámarksaksturstíma á tveimur vikum sem gert er ráð fyrir í reglunum í 90 tíma. Undanþágubeiðnin snýst þannig ekki um það að íslenskir bílstjórar fái heimild til að keyra meira en kollegar þeirra í Evrópu.
Aksturs- og hvíldartímareglur atvinnubílstjóra eru einstakar að
því leyti að þær kortleggja vinnutíma þeirra sem undir þeim starfa
niður í mínútur allan sólarhringinn. Það er ástæða til að hvetja alla
til að velta þeirri staðreynd fyrir sér. Einhverjar starfsstéttir aðrar
starfa undir ströngum hvíldartímareglum svo sem skipverjar á skipum og
flugstjórar svo dæmi séu tekin en þó öðruvísi að því leyti að þeirra
reglur snúast um klukkustundir en ekki mínútur innan hvers dags. Grein birt í Morgunblaðinu 27. apríl 2008 |