Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Fundur með Vegagerðinni um framkvæmdir í vegamálum framundan
Fundur með Vegagerðinni um framkvæmdir í vegamálum framundan Prenta Tölvupóstur

Vegamálastjóri ásamt forstöðumanni framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar komu í vikunni á fund með hagsmunaaðilum innan flutningasviðs SVÞ til að ræða framkvæmdaáætlun í vegamálum framundan. Til fundarins komu fulltrúar aðildarfélaga flutningasviðsins og Anna Kristín Gunnarsdóttir varaþingmaður og fulltrúi í samgöngunefnd stýrði umræðum.

Rögnvaldur Gunnarsson forstöðumaður framkvæmdasviðs Vegagerðarinnar kynnti á kortum hvaða einstaka vegaframkvæmdir stæði til að fara í og á eftir gafst hagsmunaaðilum tækifæri til að spyrja út í einstaka framkvæmdir. Kynningu Rögnvaldar má finna hér...

Spurt var sérstaklega út í áætlanir Vegagerðarinnar um endurbætur vegakerfisins hvað varðar breikkun vega og styrkingu þannig að þungatakmarkanir eins og sjá má hér heyri sögunni til. Hvorutveggja eru augljóslega stórt hagsmunamál flutningsaðila og raunar atvinnulíf út um allt land. Undanfarna vetur hafa þungatakmarkanir verið eitt stærsta vandamálið sem flutningsaðilar hafa þurft að glíma við og er ljóst að þær valda verulegri truflun í flutningakeðjunni á milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar. 

Í fyrirspurnum kom fram að það er Alþingis að ákveða fjármuni til viðhalds en breikkun og styrking vega fellur þar undir. 6,2 milljarðar fóru í viðhald vegakerfisins 2007, í vegáætlun er áætlað að 6,7 millj. fari í viðhald 2008, 7,7 millj. 2009 og 8,2 millj. 2010. Í vegáætlun er ekki sérstök framkvæmdaáætlun um sérstakt átak í þessu skyni en fram kom að Vegagerðin áætlar að nota stærsta hlutann af auknum fjárveitingum í breikkun og styrkingu vegarins á milli Reykjavíkur og Akureyrar og vonast er til að sú framkvæmd verði það langt á veg komin haustið 2009  að þungatakmarkanir á þessari leið ættu þar með að heyra sögunni til. Í máli vegamálastjóra kom fram að Vegagerðin hefur hug á að fara í framkvæmdir við breikkun og styrkingu á næstu árum þar sem framkvæmdirnar koma til með að hafa áhrif á heila vegakafla en enn er ástand margra íslenskra vega þannig að mikla fjármuni þarf til að framkvæmdir sem þessar skipti einhverju máli fyrir vegfarendur þegar upp er staðið. 

Það er ljóst að það er stórt verkefni að koma íslensku vegakerfi í það horf sem mörg okkar dreymir um og þó að miklir fjármunir séu áætlaðir í vegaframkvæmdir á næstu árum er þess enn langt að bíða að vegakerfið verði sambærilegt við vegakerfi nágrannalandanna.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg