Fréttir
Fréttir um lyfjasamanburð
Lyfjaverð í apótekum lægra á Íslandi en í Danmörku og Svíþjóð
| Lyfjaverð í apótekum lægra á Íslandi en í Danmörku og Svíþjóð |
|
|
- þegar litið er til 20 kostnaðarsömustu lyfseðilsskyldra lyfjaLyfjaverð á Íslandi, heildsöluverð jafnt sem smásöluverð, er ákveðið af ríkinu. Þegar borin eru saman verð milli landa er mikilvægt að nota svokallað viðmiðunarverð, sem er lægsta verð lyfja með sama innihaldsefni. Þá má ekki eingöngu telja fjölda tilfella hæsta og lægsta verðs því þá fæst ekki mynd af því hver raunverulegur verðmunur á milli landa.
Lyfjagreiðslunefnd sendir af og til frá sér tilkynningu til fjölmiðla þar sem hún ber saman heild- og smásöluverð á lyfseðilskyldum lyfjum á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum. Þetta er út af fyrir sig kostuleg æfing þar sem umrædd nefnd ákveður bæði heild- og smásöluverð þessarar vöru á Íslandi. Grundvöllur ákvörðunar nefndarinnar á lyfjaverði hér á landi er lyfjaverð á hinum Norðurlöndunum að teknu tilliti til íslenskra aðstæðna. Eðlilegt virðist að einhver annar aðili en nefndin sjálf leggi dóm á það hvort nefndin sinnir sínu hlutverki eða ekki, en gerist ekki með þessum hætti dómari um eigið ágæti. Fleira er þó gagnrýnivert varðandi umræddan verðsmanburð frá nefndinni, nefnilega það að hvergi kemur fram þar sem þessi samanburður er birtur að það sé lyfjagreiðslunefnd sem ákveði heildsölu- og smásöluverð lyfseðilskyldra lyfja. |