|
- þegar litið er til 20 kostnaðarsömustu lyfseðilsskyldra lyfja
Lyfjaverð á Íslandi, heildsöluverð jafnt sem smásöluverð, er ákveðið af ríkinu. Þegar borin eru saman verð milli landa er mikilvægt að nota svokallað viðmiðunarverð, sem er lægsta verð lyfja með sama innihaldsefni. Þá má ekki eingöngu telja fjölda tilfella hæsta og lægsta verðs því þá fæst ekki mynd af því hver raunverulegur verðmunur á milli landa.
Lyfjagreiðslunefnd sendir af og til frá sér tilkynningu til fjölmiðla þar sem hún ber saman heild- og smásöluverð á lyfseðilskyldum lyfjum á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum. Þetta er út af fyrir sig kostuleg æfing þar sem umrædd nefnd ákveður bæði heild- og smásöluverð þessarar vöru á Íslandi. Grundvöllur ákvörðunar nefndarinnar á lyfjaverði hér á landi er lyfjaverð á hinum Norðurlöndunum að teknu tilliti til íslenskra aðstæðna. Eðlilegt virðist að einhver annar aðili en nefndin sjálf leggi dóm á það hvort nefndin sinnir sínu hlutverki eða ekki, en gerist ekki með þessum hætti dómari um eigið ágæti. Fleira er þó gagnrýnivert varðandi umræddan verðsmanburð frá nefndinni, nefnilega það að hvergi kemur fram þar sem þessi samanburður er birtur að það sé lyfjagreiðslunefnd sem ákveði heildsölu- og smásöluverð lyfseðilskyldra lyfja.
Við samanburð á verði 20 kostnaðarsömustu lyfjanna 17. mars sl. í apótekum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi í meðfylgjandi töflu má sjá að þau eru að meðaltali 7,5% dýrari í Danmörku en hér á landi, 6,9% ódýrari í Noregi en hér og 2,7% dýrari í Svíþjóð en hér. Til viðbótar veita íslensk apótek mismunandi afslátt frá opinberu verði vegna samkeppni þeirra á milli en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er bannað að veita afslátt af lyfseðilsskyldum lyfjum. Þess ber þó að geta að einstök lyf eru mun dýrari hér og önnur mun ódýrari, auk þess sem gengi gjaldmiðla á hverjum tíma hefur áhrif. Sem dæmi má nefna að daginn sem verðsamanburðurinn var gerður kostuðu 30 töflur af Casodex, hormónalyfi sem er algengt í krabbameinsmeðferð, sem svarar 56.309 kr. í Danmörku en 48.514 kr. á Íslandi. Þar er verðmunurinn 7.795 kr. íslenskum apótekum í vil. Aftur á móti kostuðu 98 töflur af Simvastatin, lyfi sem er blóðfitulækkandi, sem svarar 2.101 kr. í Danmörku en 4.239 kr. á Íslandi. Þær eru með öðrum orðum 2.138 kr. dýrari hér en í Danmörku.
Verðsamanburðurinn er gerður út frá upplýsingum á vefsíðu Lægemiddelstyrelsen í Danmörku; www.medicinpriser.dk, Legemiddelverket í Noregi; www.legemiddelverket.no, Läkemedelsformånsnämnden í Svíþjóð og vefsíðu lyfjagreiðslunefndar á Íslandi; www.lgn.is. Lyfsalahópurinn mun halda samanburðinum áfram og birta verðkannanir á tveggja mánaða fresti á vef SVÞ, www.svth.is, í von um að þær megi verða málefnalegt innlegg í umræðuna um lyfjaverð hér á landi í samanburði við verð í helstu samanburðarlöndum.
Tafla: 20 kostnaðarsömustu lyfin í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi 17. mars 2008.
Frettatilkynning um lyfjaverd
Verdsamanburdur í mars 2008
|