Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Lyfjakostnaður og lyfjaverð
Lyfjakostnaður og lyfjaverð Prenta Tölvupóstur

lyfjafundur.jpgFimmtudaginn 17. janúar síðastliðinn stóðu SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica sem bar yfirskriftina: Lyfjakostnaður og lyfjaverð – Hvað getum við gert betur?

Lyfjaverð á Íslandi, bæði heildsöluverð og smásöluverð, er ákveðið af ríkinu (lyfjagreiðslunefnd) og hefur verið miðað við meðalverð viðkomandi lyfs á hinum Norðurlöndunum. Stjórnvöld hafa boðað breytingar á lyfjaumhverfinu og  heilbrigðisráðherra skipað nefnd til að endurskoða kostnaðarþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu. Eins hefur hann sett af stað vinnu við að skoða möguleika þess að Norðurlöndin verði einn markaður fyrir lyf og heilbrigðisþjónustu. Á morgunverðarfundinum var leitað svara við því hvaða aðferðum er hægt að beita til að lækka lyfjakostnað og lyfjaverð á Íslandi.

Sigurður Jónsson, framkvæmdarstjóri SVÞ, ávarpaði fundargesti í upphafi og því næst tók Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra til máls og fjallaði um opnun lyfjamarkaðar. Þá fjallaði Þorvaldur Árnason, fulltrúi lyfsalahóps SVÞ um stöðu lyfjasmásölu í dag og hvað væri til ráða til að bæta þá stöðu. Loks fjallaði Pétur H. Blöndal, alþingismaður og formaður nefndar á vegum heilbrigðisráðherra, um greiðslur einstaklinga til heilbrigðiskerfisins. Í lok voru svo fyrirspurnir og umræður. Fundarstjóri var Hrund Rudolfsdóttir, formaður SVÞ.

Glærur Péturs

Glærur Þorvaldar

Lyfjasmásala á Íslandi  

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg