Fréttir
Fréttir um lyfjasamanburð
Lyf 7,5% ódýrari út úr apótekum á Íslandi en í Danmörku
| Lyf 7,5% ódýrari út úr apótekum á Íslandi en í Danmörku |
|
|
|
Lyfjaverð á Íslandi, heildsöluverð jafnt sem smásöluverð, er ákveðið af ríkinu. Við ákvörðun þess hefur verið miðað við meðalverð viðkomandi lyfs á öðrum Norðurlöndum. Síðustu misseri hefur verið nokkur umræða um hátt lyfjaverð á Íslandi, sérstaklega í samanburði við Danmörku. Við samanburð á verði 20 kostnaðarsömustu lyfjanna í apótekum í Danmörku og á Íslandi í meðfylgjandi töflu má sjá að þau eru að meðaltali 7,5% ódýrari hér á landi en í Danmörku. Þess ber þó að geta að einstök lyf eru mun dýrari hér og önnur mun ódýrari, auk þess sem gengismunur á hverjum tíma hefur áhrif. Sem dæmi má nefna að daginn sem verðsamanburðurinn var gerður kostuðu 30 töflur af Casodex, hormónalyfi sem er algengt í krabbameinsmeðferð, sem svarar 56.672 kr. í Danmörku en 48.514 kr. á Íslandi. Þar er verðmunurinn 8.158 kr. íslenskum apótekum í vil. Aftur á móti kostuðu 98 töflur af Simvastatin, lyfi sem er blóðfitulækkandi, sem svarar 604 kr. í Danmörku en 4.239 kr. á Íslandi. Þær eru með öðrum orðum 3.635 kr. dýrari hér en í Danmörku. Til viðbótar veita íslensk apótek mismunandi afslátt frá opinberu verði vegna samkeppni þeirra á milli en í Danmörku er bannað að veita afslátt af lyfseðilsskyldum lyfjum þannig að munurinn er að lágmarki þessi 7,5%. Verðsamanburðurinn er gerður út frá upplýsingum á vefsíðu Lægemiddelstyrelsen í Danmörku; www.medicinpriser.dk, og vefsíðu lyfjagreiðslunefndar á Íslandi; www.lgn.is. Lyfsalahópurinn mun halda samanburðinum áfram og birta verðkannanir á tveggja mánaða fresti á vef SVÞ, www.svth.is, í von um að þær megi verða málefnalegt innlegg í umræðuna um lyfjaverð hér á landi í samanburði við verð í helstu samanburðarlöndum.
Nánari upplýsingar veita: Samanburður milli Íslands og Danmerkur á smásöluverði 20 kostnaðarsömustu lyfjanna - Excel skjal Samanburður milli Íslands og Danmerkur á smásöluverði 20 kostnaðarsömustu lyfjanna - PDF skjal
|