|
Dönsk fyrirtæki setja sér siðferðisstefnu |
|
|
Fjórðungur allra fyrirtækja í Danmörku hefur sett sér
siðferðisstefnu (etisk politik) sem er tvöföldun frá því fyrir fjórum árum segir
í frétt frá Jyllands-Posten. Með slíkri stefnu ákveða fyrirtæki að eiga ekki
viðskipti við hverja sem er né nota eða selja hvað sem er og gera þá kröfu til
samstarfsaðila sinna að þeir virði sömu sjónarmið innan sinna fyrirtækja.
Siðferðisstefna getur til dæmis falið í sér viðskiptabann við
framleiðendur sem notar undirverktaka við framleiðsluna sem hafa orðið uppvísir
að vinnuþrælkun barna (eða: nota vinnukraft barna). Aðrar kröfur í
siðfræðistefnu taka á umhverfis- og náttúrusjónarmiðum, dýravernd og notkun vara
sem danskir útflytjendur vilja losa sig við. Sameiginlegt öllum þessum
siðfræðistefnum er að þær gera meiri kröfur til erlendra samstarfsaðila sinna en
lögin í þeirra eigin landi gera ráð fyrir.
Með flutningi framleiðslu og
þar með skyldum og kröfum fyrirtækja og hins opinbera til landa þar sem vinnuafl
er ódýrt hafa fleiri og fleiri fyrirtæki séð sig knúin til þess að bregðast við
hættunni á því að lenda í neikvæðri umræðu eða tengslum við mengaða vöru eða
ómanneskjuleg vinnuskilyrði framleiðenda í fjarlægum löndum.
Tæplega
helmingur fyrirtækja í tölvu- og rafeindargeiranum hafa sett sér siðfræðistefnu
sem er töluvert forskot á fyrirtæki í annars konar atvinnurekstri. Þessi fjöldi
skýrist af því að tölvu- og rafeindarfyrirtæki eiga meiri viðskipti við
framleiðendur í Austurlöndum fjær en önnur fyrirtæki þar sem siðfræðikröfur eru
aðrar en á Vesturlöndum.Fyrirtæki í matvælageiranum hafa einnig verið ötul við
að setja sér siðfræðistefnu í takt við aukinn útflutning matvara m.a. til landa
í fyrrum Austur Evrópu og aukið tillit til dýraverndunarsjónarmiða ásamt
almennum siðareglum.
|