|
Lokaverkefni í verslunarfagnáminu |
|
|
Eins og Fréttapósturinn greindi frá nýlega voru brautskráðir
nú í vor 16 verslunarfagmenn frá Verslunarskóla Íslands. Nemarnir gerðu
lokaverkefni sem öll tengdust vinnustaðnum þeirra á einn eða annan hátt.
Verkefnin voru mjög ólík, en sýna öll frumkvæði, faglega nálgun á starfið og
tengsl milli skóla, vinnustaðar og starfs.
Einn af þeim sem hlaut viðurkenningu var Stefán G.
Aðalsteinsson starfsmaður hjá Byko fyrir verkefnið „Brettarekki“. Hann hannaði
útstillingarbúnað fyrir vöru, brettarekka sem er einfaldur að gerð, ódýr í
framleiðslu og einfaldur í uppsetningu. Rekkinn er einnig hannaður með tilliti
til þess að skyggja ekki á brettavöruna heldur falla vel að brettinu og síðast
en ekki síst að lítið fari fyrir honum þegar hann er ekki í notkun. Rekkinn er
samansettur af tveimur fótum vinstri og hægri sem ganga inn undir brettið og
skorðast þar, tveimur súlum er ganga niður í fæturna, gataspjaldi þar sem
hengdir eru á prjónar fyrir vörur eða hillu fyrir vörur sem ekki er hægt að
hengja upp. Brettið hefur verið notað í verkfæradeild Byko í Breiddinni þar sem
Stefán starfar og hefur reynst mjög vel.
SVÞ óska Stefáni til hamingju
með áfangann og vel unnið lokaverkefni.
|