Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Kvótauppboð á landbúnaðarvörum – úrelt aðferð Prenta Tölvupóstur
nws00621.jpgLandbúnaðarráðuneytið hefur það sem af er árinu selt tollkvóta fyrir rúmlega 570 milljónir króna. Hluti af þessu nær yfir innflutning fram á mitt næsta ár, en nærri lætur að seldir tollkvótar til notkunar á yfirstandandi ári nemi um 350 milljónum. Kvótauppboð og sala vinnur í sjálfu sér gegn markmiðinu með tollalausum innflutningi landbúnaðarvara eða lækkuðum tolli. Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir að þessi aðferðir ríkisins við úthlutun tollkvóta haldi áfram að stuðla að hærra vöruverði í landinu. SVÞ hafa bent á hugmyndir, eins og úthlutun með hlutkesti og/eða úthlutun miðað við markaðshlutdeild umsækjenda verði skoðaðar í því sambandi. Því miður kaus Alþingi að verða ekki við þessum ábendingum þegar lög um málið voru afgreidd sl. vor, en þrátt fyrir það er ljóst að landbúnaðarráðherra hefur það í hendi sér hvaða aðferð hann beitir við úthlutun innflutningskvóta þar sem enginn tollur eða lægri tollur gildir. SVÞ hafa óskað eftir viðræðum við landbúnaðarráðuneytið til að fara yfir þessi mál með það í huga að breyta núverandi framkvæmd kvótaúthlutunar.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg