Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Matvöruverslanir eiga að læra af tískuverslunum
Matvöruverslanir eiga að læra af tískuverslunum Prenta Tölvupóstur
avextir.jpgMatvöruverslanir standa frammi fyrir umbyltingu. Þær eiga að taka tískuverslanirnar sér til fyrirmyndar þegar kemur að lýsingu og öðru tengdu umhverfi og upplifun viðskiptavinarins í versluninni. Nota má stór skilti og ljósmyndir, nútímalega lýsingu og liti til að skapa réttu stemninguna segir í nýrri rannsókn um þróun smávöruverslunarinnar sem gerð var af EHI Retail Institude.  Sú tíð þegar matvöruverslanir lýstu allt húsnæðið með neonröraljósum í loftinu er liðin. Um alla Evrópu koma sífellt fram nýjar og spennandi innréttingar í matvöruverslanir þar sem mikið er lagt upp úr skemmtilegri lýsingu, svo sem díóðuljós (LED), skilti og stórar ljósmyndir. Gert er ráð fyrir að slík lýsing muni skapa stóran sess í sýningarbásum fyrirtækja á stórsýningu smávöruverslunarinnar, EuroShop 2008, sem haldin verður í Þýskalandi nú í febrúar þar sem sýndar eru nýjungar fyrir smásöluverslunina.  SVÞ hefur að venju efnt til hópferðar á sýninguna og hafa um 40 aðilar skráð sig í ferðina.
 
sssk_banner.png

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg