Velta í dagvöruverslun jókst um 10,9% í júní síðastliðnum
miðað við sama mánuð í fyrra, á breytilegu verðlagi. Á föstu verðlagi og
árstíðarleiðrétt nam hækkunin 16,6%. Á sama tímabili lækkaði verðlag á dagvöru
um 2% samkvæmt dagvöruhluta neysluverðsvísitölu Hagstofu Íslands.
Ástæða veltuaukningarinnar er því ekki hærra verðlag. Velta í
dagvöruverslunum jókst á milli mánaðanna maí og júní um 0,8%. Sala á áfengi
jókst mikið milli ára, eða um 13% á breytilegu verðlagi og 13,6% á föstu
verðlagi. Þá var einnig vöxtur í fata- og skóverslun á milli mánaðanna maí og
júní. Velta fataverslunar jókst um 3,4% og skóverslunar um 5,7% milli mánaða.
Samanlögð velta í þeim flokkum smásöluverslunar sem mælingar Rannsóknaseturs
verslunarinnar ná til jókst um 3,8% á milli maí og júní.
|