Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Fjölmiðlafundur vegna barmmerkja átaks Prenta Tölvupóstur

 SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu, Alþjóðahús, Alþýðusamband Íslands, Efling-stéttarfélag og VR tóku höndum saman og létu gera barmmerki til að virkja íslenskukennara landsins til gagns fyrir erlent starfsfólk í verslunar- og þjónustustörfum. Þar er vísað til allra Íslendinga. Átakið hófst með fundi í Alþjóðahúsi miðvikudaginn 28. nóvember síðastliðinn.

Umræða um íslenskukunnáttu þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli hefur verið hávær á undanförnum misserum. Erlendum starfsmönnum fjölgar ört í ýmsum þjónustustörfum, eins og í verslun, á hjúkrunarheimilum, í skólum og víðar. Sérstaklega hefur vakið athygli umræða um íslenskukunnáttu erlendra starfsmanna í verslunum landsins. Starfsfólki sem talar enga eða litla íslensku fjölgar ört vegna þess að verslunum hefur gengið illa að manna að fullu störf með innlendu launafólki. Merkjunum er ætlað að minna á að það tekur tíma til að læra nýtt tungumál, að það verður að sýna þolinmæði og jákvæðni og hvatning sakar ekki. Jafnframt er minnt á að íslenskan er jafnvel erfið þeim sem eiga hana að móðurmáli, og því þarf fólk að sýna þeim skilning sem eru að læra íslensku. Allir geta lagt eitthvað af mörkum; nágrannar, vinnufélagar, bekkjarfélagar, viðskiptavinir, sessunautar og aðrir geta hjálpað til í íslenskunáminu.

Barmmerkin eru með eftirfarandi áletrunum:
Ég er að læra íslensku
Íslenska er mínar ær og kýr
Tölum saman;
Kenndu mér að ...
Er íslenska ekkert mál?
Ég tala fimm tungumál
Ég tala smá íslensku
Hvernig á að fallbeygja kýr?

Íslenskukennurum landsins er bent á að tala ekki ensku að fyrra bragði, að tala íslensku nema beðið sé um annað; að gefa sér tíma til að hlusta og eiga samræður á íslensku þrátt fyrir takmarkaðan orðaforða viðmælanda; ef viðmælandi skilur ekki þá er ráð að endurtaka og hækka ekki róminn heldur tala hægar eða að breyta um orðalag og nota einfaldari orð. Forðast ber að nota barnamál.

Barmmerkjunum var dreift til aðildarfélaga ASÍ og aðildarfyrirtækja SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu um allt land og til símenntunarmiðstöðva. Þá verður hægt að hafa samband við Alþjóðahúsið, ASÍ, Eflingu, SVÞ eða VR til að fá fleiri merki.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg