Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Gjafakort í jólapakkann
Gjafakort í jólapakkann Prenta Tölvupóstur

17 LaugavegiGjafakortin hafa selst vel í Smáralind, Kringlunni og hjá Miðborg Reykjavíkur. Smáralind reið á vaðið með rafrænu kortin árið 2004 og Kringlan bættist í hópinn í fyrra. Miðborg Reykjavíkur er að bjóða upp á rafræn gjafakort í fyrsta sinn í ár. Þar segja menn að sala á gjafakortum hafi 12 faldast með tilkomu rafrænu kortanna. Svipaða sögu er að segja á öðrum stöðum.

Nú er hægt að fá fallegar gjafaöskjur utan um kortin þar sem jafnvel er hægt að setja litla gjöf með og kortin því orðin falleg og skemmtileg jólagjöf. Fyrirtæki hafa í auknum mæli nýtt sér kortin sem jólagjafir til starfsmanna því úrval verslana og þjónustu þar sem hægt er að nota kortin er mjög fjölbreytt og líklegt að flestir finni eitthvað við sitt hæfi.

Engar tölur liggja fyrir um nýtingu kortanna en tilfinning manna er að hún sé almennt góð. Á öllum þremur stöðum er mjög gott aðgengi að upplýsingum um stöðu kortanna og geta korthafar flett henni upp á heimasíðum viðkomandi aðila eða fengið upplýsingar símleiðis. Rafrænu kortin virka eins og debetkort nema að þau eru handhafakort og því ekki skráð á nafn og ekki með mynd né undirskrift korthafa.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg