| Svikafyrirtæki lifna við á sumrin |
|
|
Á sumrin lifnar yfir svikastarfsemi sem beinist að því að svíkja fé af
fyrirtækjum. Þeir sem hafa þessi svik að atvinnu leggja á sig aukavinnu á
sumarleyfistímum fyrirtækja þar sem reynsluleysi sumarafleysingafólks hefur
reynst drjúg tekjulind.
SVÞ vara við pósti þar sem reynt er að fá fyrirtæki til að
samþykkja skráningu í gagnabanka, að því er virðist án endurgjalds, en í smáu
letri sem fylgir skilmálum kemur fram að greiða þurfi miklar fúlgur fyrir
skráninguna. Reikningar frá fyrirtækinu sem fylgja í kjölfarið koma því
óþægilega á óvart. Ef reikningar eru ekki greiddir er skuldurum hótað hörðum
innheimtuaðgerðum og ærnum viðbótarkostnaði. SVÞ ráðleggja fyrirtækjum að greiða
ekki slíka reikninga enda ætíð um að ræða undirskrift sem fengin er með
ólögmætum hætti. SVÞ og SA hafa kynnt Lögmannafélagi Íslands og helstu
innheimtufyrirtækjum þessa starfsemi og varað við því að taka að sér slíkar
innheimtur. Ekki er vitað til að reynt hafi verið að innheimta svona skuldir með
fulltingi lögmanna hér á landi.
Nýjum aðferðum við svikastarfsemi skýtur reglulega upp kollinum og hringingar beint í fyrirtæki eru orðnar algengar. Algengt er að hringt sé frá fyrirtæki sem tilkynnir að það vinni fyrir viðskiptavin sem hafi óskað eftir að vera skráður á Netið með sama nafn og fyrirtækið sem hringt er í, en með öðru léni, t.d. www.nonnabud.com (í stað .is). Á meðan samtalinu stendur er fyrirtækinu boðið að kaupa sjálft umrætt netfang (með endingunni .com). Þeir sem samþykkja það komast að því síðar að þeir greiða margfalt hærra verð en ef þeir hefðu gert þetta að eigin frumkvæði. Illræmdasta fyrirtækið er European City Guide og þessa dagana er fyrirtækjum að berast póstur frá Europe Business Guide sem er eitt af þessu svikafyrirtækjum. Frekari upplýsingar um þessi fyrirtæki má finna með því að slá þeim upp á vefsíðu Google |