|
Afhjúpun álnastiku og upplýsingaskjaldar á Þingvöllum |
|
|
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og Neytendastofa í samstarfi við Landsbanka Íslands og Þingvallanefnd hafa unnið saman að því að setja upp við Þingvallakirkju upplýsingaskjöld og álnastiku, sambærilega þeirri er notuð var til mælinga hér áður fyrr. Næstkomandi laugardag, þann 1. desember klukkan 13.00 verður athöfn við Þingvallakirkju þar sem upplýsingaskjöldurinn og álnastikan verða afhjúpuð. Þetta er gert til að minnast þess að í ár eru liðin 90 ár frá setningu fyrstu laga um löggildingarstofu á Íslandi.
Rétt mál og vog er forsenda ásættanlegrar verslunar sem síðan er
undirstaða menningar og þroska þjóða. Því er þýðing stikulaganna og
tilvitnaðra löggildingarlaga áréttuð af samtökum verslunarinnar og
þeirri stjórnsýslustofnun sem löggilding heyrir undir með
upplýsingaskilti og stiku við Þingvallakirkju.
|