Í síðustu viku var gefið út 1. tbl. LV FRÉTTA. Blaðið er
fréttabréf til félagsmanna í Landssambandi vörubifreiðaeigenda (LV),en eins og
glöggir lesendur Fréttapóstsins hafa séð þá gengu félagsmenn LV í samtökin
snemma á þessu ári. LV gaf út fréttabréf þrisvar – fjórum sinnum á ári og munu
SVÞ gefa út þetta fréttabréf um sinn a.m.k.
Stefnt er að því að þetta verði rafrænt fréttabréf þar sem
ætla má að flestir félagsmenn LV hafi aðgang að netsambandi eins og stærstur
hluti þjóðarinnar og útgáfa prentefnis er tímafrek og kostnaðarsöm samanborið
við rafræn fréttabréf. Enn vantar þó netföng vörubifreiðaeigenda og því erfitt
að ná til þeirra með öðru móti. Þeir eru eindregið hvattir til að senda netföng
sín til SVÞ. Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs SVÞ annaðist
skrif og útgáfu fréttabréfsins.
LV Fréttir á pdf
|