|
Útskrift úr verslunarfagnámi hjá Símey |
|
|
Föstudaginn 23. nóvember síðastliðinn var fyrsta útskrift verslunarfagnámsins hjá Símey, að viðstaddri Sigríði Önnu Guðjónsdóttur, verkefnastjóra SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Athöfnin hófst klukkan 14:00 að Þórsstíg 4, í húsnæði Símey þar sem nemendur kynntu lokaverkefni sín. Því næst var haldið út á Árskógssand í kynnisferð um hina nýju bruggverksmiðju Kalda. Um kvöldið var svo glæsilegur kvöldverður á veitingastaðnum Halastjörnunni í Öxnadal þar sem nemendur voru jafnframt útskrifaðir. Tveir nemendur hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi og metnaðarfullt lokaverkefni og góðar framfarir í náminu. Það voru þau Sigurlaug Stefánsdóttir og Hlynur Kristjánsson sem hlutu viðurkenningarnar og óska SVÞ þeim innilega til hamingju með árangurinn.
|