Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Verslunarfagnám á vegum Símey Prenta Tölvupóstur
simey.jpgNú í janúar verður boðið upp á Verslunarfagnám á vegum Símey - Símenntunarstöðvar Eyjafjarðar í annað sinn. Fyrsti hópurinn útskrifaðist nú í nóvember og hefur verið almenn ánægja meðal þátttakenda og fyrirtækja með námið. Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er námið metið til 51. einingar á framhaldsskólastigi.


Námið fer fram bæði í skóla og sem markvisst skipulagt vinnustaðanám. Námstími skiptist jafnt milli skólanáms og vinnustaðanáms, 340 klukkustundir hvor hluti. Dæmi um skipulag er t.d. þrjú námsmisseri sem skiptast í eina stutta undirbúningslotu og þrjár aðallotur sem hver um sig nær yfir 13 vikur. Faglegt lokaverkefni og þjálfun í sérstakri færni er hluti af síðustu lotunni.

Hver aðallota hefur ákveðið verslunartengt þema. Í lotu 1 er áhersla lögð á starfsmanninn og starfsvettvanginn, í lotu 2 er lögð megináhersla á þjónustu við viðskiptavininn og sölu og í lotu 3 er áherslan á vörur og ýmis sérsvið verslunar.
Sé miðað við þetta skipulag þá er að meðaltali 12 kennslustunda/8 klukkustunda skólaviðvera í hverri viku í aðallotunum þremur og reikna má með allt að því jafnlöngum tíma í starfsnám á vinnustað.

Meðal kennslugreina er; hugmyndafræði, vinnubrögð, vinnustaðurinn, sjálfsþekking, tölvur/upplýsingatækni, fjármál, verslunarreikningur, fagenska, framkoma og ræðumennska, þjónusta og sölumennska, vörufræði, og margt fleira.

Verð á lotu er 22.000.- (66.000.- allar annirnar).  Fyrirtæki geta sótt um styrk vegna starfsþjálfa til Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofugreina (www.starfsmennt.is ) og nemur hann 30.000 vegna hvers nemanda á önn.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg