SÞV – Samtök verslunar og þjónustu, Efling, ASÍ, VR og Alþjóðahús eru sameiginlega að vinna að útgáfu barmmerkja fyrir starfsfólk verslana, sem eiga reyna að sporna við fordómum í garð útlendra starfsmanna verslana hér á landi. Fyrr í haust var mikil umræða í fjölmiðlum um neikvætt viðmót sumra Íslendinga við starfsfólk sem er af erlendu bergi borið og vinnur í þjónustustörfum. Í verstu tilfellunum gengu viðskiptavinir jafnvel út er þeir komust að því að starfsmaður verslunarinnar talaði ekki góða, eða alls enga íslensku.
Merkin verða tekin í notkun næstu daga og munu vonandi vekja athygli á þessu brýna málefni. Strax eftir áramót verður svo sett af stað auglýsingaherferð á vegum AUGA fyrir Mannréttindastofu þar sem verður tekið á mismunun fólks í samfélaginu.
|