| “Countries need Better Trade Logistics to Compete” |
|
|
|
“Wheather a cause or a consequence, no country has grown successfully without a large expanion of it´s trade.” „Hvort heldur um er að ræða orsök eða afleiðingu er beint samhengi á milli aukinnar verslunar þjóða og árangursríks vaxtar“. Þessa setningu má finna í formála að skýrslu um rannsókn á frammistöðu landa heimsins í vöruflutningum (logistics) sem gefin er út af Alþjóðabankanum. Maður skildi ætla að á árinu 2007 væru þetta engin ný sannindi en samt er það svo að umræða stjórnmálanna nú um stundir gefur fyllstu ástæðu til að minna á þessa staðreynd. Í skýrslunni er varpað ljósi á hvaða atriði það eru sem skipta máli til að land geti talist sýna góða frammistöðu í vöruflutningum. Einnig er varpað ljósi á hvaða atriði eru slæm og virka letjandi fyrir aðila sem vilja eiga viðskipti við landið. Ekkert í skýrslunni kemur þeim sem starfað hefur lengi í flutningagreininni á óvart. Þar er m.a. bent á nauðsyn þess að vöruflæði taki sem skemmstan tíma og kosti sem minnst og að fyrirsjáanleiki og áreiðanleiki eru atriði sem skipta miklu máli. Connecting to Compete – Trade Logistics in the Global Economy The Logistics Performance Index and Its Indicators – 2007 |