Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa arrow Forsíđa arrow Aukin skóverslun í júní
Aukum kaupmáttinn
Aukin skóverslun í júní Prenta Tölvupóstur

prosentutakn.jpgSamkvæmt tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar jókst velta í dagvöruverslun um 2,5% á föstu verðlagi í júní miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 8,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í júní um 1,2% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 6,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Sala áfengis jókst um 6,0% í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 11,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta áfengis í júní saman um 2,8% frá sama mánuði í fyrra.  Verð á áfengi var 5,1% hærra í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Tilkynning frá RSV.

Fataverslun jókst um 0,7% í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 5,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í júní um 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 4,5% frá sama mánuði fyrir ári.  

Velta skóverslunar jókst um 16,8% í júní á föstu verðlagi og um 19,5% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 2,3% frá júní í fyrra.

Velta húsgagnaverslana dróst saman um 6,3% í júní frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi og um 2,1% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 4,5% hærra í júní síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 9,0% í júní síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 26,7% á föstu verðlagi.

Sala á raftækjum jókst um 10,6% í júní á föstu verðlagi og um 10,5% á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum lækkaði um 0,1% frá júní 2011.  

Verðlag og neysla
Í júní síðastliðnum voru fimm helgar en í sama mánuði í fyrra voru þær fjórar. Þetta skýrir ástæðu þess að velta jókst að nafnvirði í dagvöruverslun, áfengi og fataverslun en þegar leiðrétt hefur verið fyrir dagamun á milli ára kemur í ljós óveruleg aukning eða samdráttur.

Athyglisvert er að á meðan fataverslun dróst nokkuð saman fyrri helming ársins samanborið við sama tíma í fyrra jókst skóverslun á sama tíma. Þetta þrátt fyrir að verð á skóm hafi hækkað meira en á fötum. Á fyrstu sex mánuðum ársins varð samdráttur í fataverslun um 0,5% að raunvirði en á sama tíma aukning í skóverslun um 6,7%. Á þessum tíma hækkaði verð á fötum að meðaltali um 2,0% en á skóm um 6,6%.

Verslun með raftæki jókst um 10,6% í júní og lækkaði verð á raftækjum lítillega frá sama mánuði í fyrra. Ætla má að neytendur séu að endurnýja hjá sér heimilistæki eftir samdrátt sem fór að gera vart við sig fyrir um fjórum árum í aðdraganda efnahagshrunsins. Raunvelta raftækjaverslana var 29,9% meiri í júní síðastliðnum heldur en í júní 2009.

Húsgagnaverslun hefur verið nokkuð sveiflukennd það sem af er þessu ári en að jafnaði nokkuð svipuð og fyrri helming síðasta árs. Velta í sérverslunum með rúm jókst um 7,8% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra að raunvirði. Sala skrifstofuhúsgagna dróst hins vegar saman um 20,6% á fyrri helmingi ársins.

Vísbendingar eru um að neysla haldi áfram að aukast á næstunni. Kaupmáttur eykst og var 5,3% meiri í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þá fara væntingar neytenda vaxandi ef marka má væntingavísitölu Capacent sem jókst um 22,2% frá júní í fyrra.


Nánari upplýsingar veita Kári Joensen (kari@bifrost.is) í síma 862 4554 og Emil B. Karlsson (emil@bifrost.is), forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Skýrsla um vörugjöld

Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg