|
Réttaróvissa um fjármögnunarsamninga |
|
|
|
Nokkur valin prófmál fá flýtimeðferð fyrir dómi
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu ásamt Samtökum iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins efndu sl. fimmtudag til opins fundar um þá réttaróvissu sem skapast hefur í kjölfar nýlegra dóma um fjármögnunarsamninga fyrirtækja og útreikning vaxta af erlendum lánum, sem dæmd hafa verið ólögleg.
Fundurinn var haldinn á Grand Hóteli Reykjavík og frummælendur á fundinum voru lögmennirnir Einar Hugi Bjarnason og Þorsteinn Einarsson. Ræddu þeir almennt stöðu mála varðandi fjármögnunarsamninga og sér í lagi með hliðsjón af þeirri réttaróvissu sem skapast eftir nýlega dóma Hæstaréttar í málum vegna þessara samninga. Þá var kynnt sú vinna sem hefur átt sér stað varðandi samstarf fjármálafyrirtækja og fulltrúa lánþega um úrvinnslu gengistryggðra lána. Í því samhengi var upplýst á fundinum að til stendur að reka ákveðinn fjölda dómsmála til að fá úr skorið þeirri óvissu sem nú ríkir og vænta má niðurstöðu í þeim málum í fyrsta lagi vorið 2013 en þó eigi síðar en fyrir árslok 2013
Í kjölfarið sköpuðust ágætar pallborðsumræður þar sem gestum fundarins
gafst færi á að varpa fram spurningum sem vaknað hafa í kjölfar þeirrar
óvissu sem nú er uppi.
Til frekari upplýsingar má benda á meðfylgjandi frásagnir fjölmiðla af fundinum.
Umfjöllun á visir.is
Morgunblaðið 29.6.2012
Fréttablaðið 29.6.2012
Frétt á vef SA
Í Bítið á Bylgjunni - viðtal við Orra Hauksson frkvstj. SI
|