| Gull í Cannes |
|
|
|
Verðlaunin voru veitt fyrir heimboð Íslendinga, sem voru liður í haustátaki Inspired by Iceland. Íslendingar voru hvattir til þess að mynda persónuleg kynni við ferðamenn. Fjölmargir Íslendingar tóku þátt í verkefninu með því að bjóða erlendum ferðamönnum að sækja sig heim, eða taka þátt í daglegu lífi Íslendinga með öðrum hætti. Íslandsstofa annast framkvæmd verkefnisins, sem er undir stjórn iðnaðarráðuneytisins, fjármálaráðuneytis, Icelandair, Reykjavíkurborgar, Samtaka ferðaþjónstunnar, Iceland Express, ISAVIA, Samtaka verslunar og þjónustu og Landsbankans. Rúmlega 130 fyrirtæki eru þátttakendur í verkefninu. |