Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa arrow Forsíđa arrow Áfengisverslun ađ ná sér á strik
Aukum kaupmáttinn
Áfengisverslun ađ ná sér á strik Prenta Tölvupóstur

prosentutakn.jpgSamkvæmt tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar jókst velta í dagvöruverslun um 2,5% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 8,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í maí um 1,9% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 6,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Sala áfengis jókst um7,8% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 13,2% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta áfengis í maí um 1,9% frá sama mánuði í fyrra.  Verð á áfengi var 4,9% hærra í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Tilkynning frá RSV.

Fataverslun dróst saman um 5,1% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 2,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í maí um 7,9% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 3,2% frá sama mánuði fyrir ári.  

Velta skóverslunar jókst um 2,2% í maí á föstu verðlagi og um 7,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 4,9% frá maí í fyrra.

Velta húsgagnaverslana jókst um 0,8% í maí frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi og um 5,8% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 5,0% hærra í maí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 9,3% í maí síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 17,7% á föstu verðlagi.

Sala á raftækjum í maí jókst um 0,9% á föstu verðlagi og um 2,6% á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum var 1,7 % hærra en í maí 2011.

Verðlag og neysla
Velta í smásöluverslun í maí jókst í flestum vöruflokkum frá sama mánuði í fyrra. Þetta á til dæmis bæði við um mat- og drykkjarvöru.  Sala áfengis hefur farið lítið eitt vaxandi að undanförnu og virðist sem landsmenn séu að jafna sig á miklum verðhækkunum áfengis sem urðu í kjölfar efnahagshrunsins, en þær verðhækkanir leiddu til mikils samdráttar í sölunni.

Fataverslun í maí sker sig úr hvað varðar vöxt þar sem 7,9% raunsamdráttur varð í sölu á fatnaði frá sama mánuði í fyrra þegar tekið hefur verið tilliti til daga- og árstíðabundinna þátta. Fataverslun hefur ekki náð sér á strik frá því að samdráttarskeiðið hófst síðari hluta 2008. Því hefur verið kennt um að fataverslun hafi að einhverju leyti flust úr landi. Einnig virðist sem dregið hafi úr kaupum á dýrum tískumerkjum hér heima og nýting á fötum sé meiri en áður var. Raunvelta fataverslana minnkaði um 0,8% fyrstu fimm mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta á þó ekki við um skóverslun sem jókst um 4,7% á þessum sama tíma.    

Einkaneysla hefur farið vaxandi og áfram er gert ráð fyrir vexti hennar á þessu ári. Velta innlendra greiðslukorta heimilanna jókst í maí um 11,2% frá sama mánuði í fyrra samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands og í apríl hafði kaupmáttur launa aukist um 5,1% frá sama mánuði í fyrra. Með áframhaldandi vexti á einkaneyslu má gera ráð fyrir að það styrki verslun, ekki síst sérvöruverslun sem hefur átt í vök að verjast.


Nánari upplýsingar veita Kári Joensen (kari@bifrost.is) í síma 862 4554 og Emil B. Karlsson (emil@bifrost.is), forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Skýrsla um vörugjöld

Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg