|
Innflutningur á hampfrćjum og hamppróteini |
|
|
|
Í apríl sl. beindu SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu kæru, f.h. aðildarfélags samtakanna, til velferðarráðuneytis vegna synjunar Lyfjastofnunar um undanþágu fyrir innflutning á hampfræjum og hamppróteindufti. Höfnun Lyfjastofnunar grundvallaðist á því að umræddar vörur væru báðar afurðir kannabisplöntunnar og meðhöndlun þeirra því óheimil á íslensku forráðarsvæði.
Á grundvelli þeirra athugasemda, gagna og ábendinga sem fram komu í kæru SVÞ hefur Lyfjastofnun nú fallist á að endurskoða fyrri ákvörðun sína. Telur stofnunin því ekki vera til staðar forsendur til að fella umræddar vörur undir ákvæði laga um ávana- og fíkniefni og þar af leiðandi er heimilaður innflutningur á þeim vörum inn á íslenskt forráðasvæði í samræmi við almennar reglur sem gilda almennt um innflutning á matvörum.
Forsaga þessa máls er að á síðasta ári vaknaði áhugi fyrirtækisins að flytja inn lífrænt ræktuð hampfræ og lífrænt ræktað hamppróteinduft. Tilgangur þessa innflutnings var að markaðsetja umræddar vörur hér á landi undir ákveðnu vörumerki fyrirtækisins en undir sama vörumerki hafa þegar verið settar á markað ýmsar vörur hér á landi. Við undirbúning markaðsetningar var litið til þess að umræddar vörur eru markaðsettar víða um heim og þá sérstaklega á innri markaði ESB. Í ljósi þessa var það mat fyrirtækisins að heimilt væri að markaðsetja umræddar vörur hér á landi enda væri eingöngu um að ræða matvörur sem á engan hátt geta falið í sér eiginleika hampplöntunnar er falli undir löggjöf um ávana- og fíkniefni.
Ber þess að geta að vörur þessar eru framleiddar á þann hátt að útilokað er með öllu að unnt sé að nýta þær til ræktunar eða að þær feli í sér sömu eða sambærileg áhrif og gerist með ólögleg ávana- og fíkniefni. Taldi fyrirtækið því að umræddar vörur ættu að óbreyttu að eiga greiða leið inn á innlendan markað enda eru þess dæmi að vörur þessar standi nú þegar innlendum neytendum til boða.
Í ljósi þessa liggur því fyrir að innflutningur á hampfræjum og hamppróteindufti gengur ekki gegn löggjöf um ávana- og fíkniefni. SVÞ fagna þessari niðurstöðu sem mun fyrirsjáanlega taka jafnt til allra innflytjenda á umræddum vörum.
|