Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Millilandagjöld í kortaviðskiptum dæmd ólögleg
Aukum kaupmáttinn
Millilandagjöld í kortaviðskiptum dæmd ólögleg Prenta Tölvupóstur
mastercard.jpgEvrópudómstóllinn (European Court of Justice) úrskurðaði á dögunum að s.k. millilandagjöld í kortaviðskiptum (Multilateral interchange fee)  væru ólögleg. Er þar með í höfn baráttumál sem EuroCommerce, Evrópusamtök verslunar- og þjónustufyrirtækja hafa haft veg og vanda að því að leiða. Mál þetta snéri að kortafyrirtækinu MasterCard og er fyrirtækinu með úrskurðinum gefinn sex mánaða frestur til þess að leggja gjaldið af.

Niðurstaða þessa máls merkir að millilandagjöld sem MasterCard hefur lagt á um langt árabil eru í andstöðu við evrópskan samkeppnisrétt og ber því að afnema þau. Verslunar- og þjónustufyrirtæki hafa staðið mjög höllum fæti gagnvart þessu gjaldi en ógagnsætt kerfi hefur verið byggt upp í kring um það. Þá hefur ekki verið neinn möguleiki fyrir fyrirtæki að semja um gjaldið.

Það er viðurkennt með þessum úrskurði dómstólsins að gjaldið hefur leitt af sér mikinn kostnað fyrir verslunar- og þjónustufyrirtæki, án þess að söluaðilar hafi notið gjaldsins að nokkru leyti. Það verður nú lagt fyrir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að búa til nýtt að heilbrigðara regluverk um greiðslukerfi í kortaviðskiptum, en þar er þegar til staðar grænbók um greiðslukerfi (Green Paper on Payments), sem verður fyrirmynd að nýju kerfi. Þá verður það einnig lagt fyrir samkeppnisyfirvöld einstakra ríkja að fylgja þessari niðurstöðu dómstólsins sérstaklega eftir.

Það skal tekið fram að SVÞ er aðili að EuroCommerce, Evrópusamtökum verslunar- og þjónustufyrirtæja.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg