Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Greining fræðslu- og menntunarþarfa innan flutningagreinarinnar.
Greining fræðslu- og menntunarþarfa innan flutningagreinarinnar. Prenta Tölvupóstur
lager.jpgStarfsgreinaráð samgöngu-, farartækja og flutningsgreina fékk á dögunum styrk frá Þróunarsjóð framhaldsfræðslu til að greina þarfir flutningagreinarinnar á sviði menntunar og fræðslu.

Flutningagreinin er afar mikilvægur þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar og miklar kröfur eru gerðar til hennar um lögleg og fagleg vinnubrögð. Kröfur eru gerðar til þekkingar í jafnólíkum þáttum og öryggismálum, þjónustu, frágangi á farmi, vörumeðhöndlun, flutningsferlum, gæðaeftirliti, tjónamálum og að lögum sé fylgt og  viðskiptaskilmálar uppfylltir.  Ekkert heildstætt nám er þó til sem mætir beint þörfum hennar en meirihluti þeirra sem starfa við greinina í dag er fólk með stutta skólagöngu að baki.  Mikilvægi þess að koma á markvissu námi innan greinarinnar er því afar tímabært.


Starfsgeinaráðið  mun vinna þarfagreininguna með flutningasviði SVÞ og Starfsgreinasambandi Íslands auk þess sem fyrirtækið Attentus mun sjá um framkvæmd.  Vinna hefst á næstu dögum og skal vera lokið um áramót.

Flutningasvið SVÞ fagnar þessum tímamótum og telja samtökin þarfagreininguna mikilvæga fyrir greinina í heild sinni, svo hún geti vaxið og dafnað í takt við atvinnulífið. 
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg