| Fordćmisgildi dóms í „Smákranamálinu“. |
|
|
Fimmtudaginn 24. maí sl. kvað Hæstiréttur upp dóm í máli Smákrana gegn Lýsingu þar sem deilt var um fjármögnunarleigusamning þessara aðila. Í dómi sínum fellst Hæstiréttur ekki á að samningur þessar aðila hafi verið lánssamningur. Því hafi verið heimilt að semja um að leigugjald í viðskiptum þeirra tæki mið af breytingum á gengi erlendra gjaldmiðla. Niðurstaða Hæstaréttar gengur þvert á niðurstöðu héraðsdóms í málinu sem og niðurstöðu Hæstaréttar í svokölluðu Kraftvélaleigumáli frá 20. október 2011.Af rökstuðningi Hæstiréttar má ráða að dómurinn telji ósannað að samið hafi verið um að Smákranar myndi eignast hið leigða gegn ákveðinni greiðslu við lok leigutímans. Því telur Hæstiréttur ekkert annað liggja fyrir en að á því tímamarki stofnist ótímabundinn leigumáli gegn verulega lægra gjaldi sem fyrirtækinu er heimilt að segja upp með eins mánaðar fyrirvara ásamt því að skila hinu leigða samkvæmt samningi aðilanna. Þannig er að mati Hæstaréttar ósannað að samið hefði verið um að Smákranar myndu eignast hið leigða gegn ákveðinni greiðslu við lok leigutímans. Að mati SVÞ ræðst því dómur Hæstaréttar af skorti á sönnunum um áðurnefnd atriði og hafi því takmarkað fordæmisgildi varðandi efni og eðli slíkra samninga. Er því að mati SVÞ enn ósvarað mikilvægum spurningum um gildi sambærilegra samninga og réttarstöðu þeirra. SVÞ telja því mikilvægt að skorið verði úr ágreiningsmálum þessum með skýrari hætti en gert er nú enda eins og áður sagði fellur dómurinn á grundvelli þess að einstök atriði teljast ósönnuð. Samtökin hafa upplýsingar um að fyrir dyrum stendur að reka nokkurn fjölda dómsmála á næstunni þar sem leitast verður við að fá svör við þeim spurningum sem bæði þessi dómur og dómurinn í „Lýsingarmálinu“ sem kveðinn var upp í febrúar sl. hafa látið ósvarað. Í öllum tilfellum verður óskað eftir flýtimeðferð fyrir dómstólum. Ljóst er að niðurstaða þessara mála mun hafa áhrif á sambærilega samninga og því telja SVÞ það verulegt hagsmunamál að tryggt verði að þau fái flýtimeðferð fyrir dómi svo unnt verði að eyða þeirri óvissu sem upp er komin í kjölfar dóms Hæstaréttar. |