| Eru erlendir ferðamenn velkomnir í þína verslun? |
|
|
Fimmtudaginn 10. maí 2012 var haldinn félagsfundur fyrir verslunar- og þjónustuaðila um erlenda ferðamenn sem viðskiptavini, samanber yfirskrift fundarins; eru erlendir ferðamenn velkomnir í þína verslun. Góð mæting var á fundinn sem taldi ríflega 30 einstaklinga frá 25 fyrirtækjum. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, bauð gesti velkomna og talaði um mikilvægi þess að vera vel undirbúinn til að mæta þeim fjölda ferðamanna sem áætlaður er á næstu mánuðum sbr. við þær spár sem Hagstofan hefur birt um fjölda gistinótta , sjá nánar hér. Á mælendaskrá voru Valur Fannar Gíslason frá Tax Free World Wide, Þorsteinn Örn Guðmundsson frá Ráðstefnuborginni Reykjavík og Ágúst Ágústsson frá Faxaflóahöfnum. Erindi þeirra áttu það sammerkt að fjalla um aukinn fjölda ferðamanna sem þá skilar sér í aukinni verslun. Samanber niðurstöður frá Tax Free World Wide þá var endurgreiddur virðisauki til einstaklinga frá 175 þjóðlöndum á síðasta ári. Að því sögðu þarf að huga að því hvernig verslanir og þjónustuaðilar eru í stakk búnir til að taka á móti erlendum ferðamönnum, s.s. hvað varðar gluggaútstillingar, verðmerkingar, opnunartíma, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, þekkingu á menningarmun milli þjóða, söluvörum og tungumálakunnáttu starfsfólks |