Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Ökuritakort – hækkun á gjaldi
Ökuritakort – hækkun á gjaldi Prenta Tölvupóstur

kuriti_og_bll.jpgUm nýliðin áramót voru  rafræn ökuritakort hækkuð um 102 %,  úr  kr. 8700,-  í  kr. 17.650,-  Þessi hækkun gekk í gegn án þess að vera tilkynnt hagsmunaaðilum með einum eða öðrum hætti.

Samtök atvinnulífsins, SVÞ - Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök iðnaðarins og Samtök ferðaþjónustunnar mótmæltu  þessum vinnubrögðum með bréfi til umferðastofu og  þá afriti af því bréfi til innanríkisráðuneytisins, sjá frétt hér.  

Samtökunum hefur borist svar frá Umferðastofu vegna þessa og segir í því bréfi að verð ökuritakortanna í dag endurspegli þann raunkostnað sem af þeim hlýst en fyrra gjald hafi ekki staðið undir þeim kostnaði.  Ennfremur segir að rekstur verkefnisins sé mjög íþyngjandi og þá að  skyldaður erlendur stjórnsýslukostnaður og kerfis- og hugbúnaðarkostnaður  sé mjög mikill. 

Málið var tekið upp með innanríkisráðuneytinu nýverið og sagðist fulltrúi ráðuneytisins skilja vel þann urg sem væri í mönnum vegna þessa og mun hann kynna sér málið nánar.

Ljóst er að málið þarf að skoða ítarlega, s.s kafa betur ofan í suma af  kostnaðarliðum en svo virðist sem  stofnunin fái meiri tekjur í ár en útgjöld verða miðað við áætlaðan fjölda af kortum.

Svar Umferðastofu.

Útreikingar á kostnaðarliðum



 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg